Engin félagsgjöld í FÁFAK
| Ég hef rétt til að taka ákvarðanir, framfylgja þeim og taka afleiðingunum. |
Aðalvalmynd
| Heim |
| Fréttir |
| Leit |
| Hlekkir |
| Greinar |
| Spurt og svarað |
| Skjalasafn |
Tengt efni
| Tálmanaofbeldi og Munchausen staðgengilsheilkennið |
|
|
|
|
Munchausen staðgengilsheilkennið lýsir sér m.a. þannig að forráðamenn gera börnum sínum upp veikindi og framkalla jafnvel veikindi hjá þeim. Þetta gera gera þeir til að geta leikið hlutverk umönnunaraðila alvarlega veiks sjúklings og fá þá athygli, samúð og aðdáun sem slíkt fólk á skilið. Flest dæmi eru um að mæður geri dætrum sínum upp veikindi. Afleiðingarnar fyrir börnin eru skelfilegar. Það er alþekkt í tálmanaofbeldismálum hér á landi að mæður gera börnum sínum upp ýmsa hegðun og segja líka að börnin hafi sagt sér hitt og þetta og þau vilji ekki fara til feðra sinna og "ástand" barnsins sem þær lýsa sé föðurnum að kenna. Reynslan sýnir að tálmanaofbeldismæður fá með þessu auðveldlega samúð og athygli fagstétta í barnamálum hér á landi, t.d. innan barnaverndarkerfisins og stjórnsýslunnar sem fara með forrjár- og umgengnismál. Afleiðingarnar fyrir börnin eru skelfilegar. FÁFAK bendir á að margt er sameiginlegt með Muchausen staðgengilsheilkenninu og Foreldrasviptingarheilkenninu (PAS) Nefna má t.d. 1) gerendur eru nánast eingöngu konur 98-100% 2) þær láta líta út fyrir sem þær séu eingöngu að hugsa um hag og velferð barnanna 3) börnin sem þær beita fyrir sig eru oftast mjög ung þegar blekkingin byrjar og oftast ekki byrjuð í skóla og 4) Afleiðingarnar fyrir börnin eru skelfilegar og hefur áhrif á líf þeirra alla tíð. Kvennasamtök hafa lengi barist gegn viðurkenningu PAS heilkennisins aðallega vegna þess að kenningin hefur verið notuð víða í forsjár- og umgengnismálum með góðum árangri fyrir börnin en oftast gegn kröfum mæðra. Munchausen heilkennið hefur ekki mætt sömu andspyrnu kvennasamtaka líklega vegna þess að það hefur ekki verið notað og ráðið niðurstöðu í deilumálum um skipan forsjár- og umgengni barna. Hér má lesa um Munchhausen heilkennið á íslensku og hér á ensku. Hér má lesa um PAS heilkennið á ensku. |
| < Fyrri | Next > |
|---|


