Engin félagsgjöld í FÁFAK

Ég hef rétt til að verjast árásum annara sem hindra eða berjast gegn réttindum mínum.
 
Trúarskoðanir verra en tálmanaofbeldi eða níðskrif? PDF Prenta Póstur

Skólayfirvöld á Akureyri hafa tekið þá ákvörðun að senda Snorra í Betel kennara við Brekkuskóla í tímabundið leyfi vegna þess að hann hefur skoðanir byggðar á trú sinni og birt á bloggsíðu. Snorri er einmitt þekktur fyrir að koma heiðarlega fram.

Í Giljaskóla á Akureyri hefur um nokkurt skeið starfað kvenkynskennari sem þekkt er fyrir að hafa árum saman beitt eigið barn tálmanaofbeldi og verið sektuð af stjórnvöldum fyrir það. Hefur þessum kennara ekki verið vikið frá störfum.

Þá er enn yfirmaður Barnaverndar á Akureyri, Áskell Örn Kárason, þrátt fyrir að hann hafi viðhaft níðskrif á Facebook-síðu sinni um fólk sem er dökkt á hörund. Fjallað var um það á pressan.is á sínum tíma. Staðgengill Áskels Arnar hjá Barnavernd er svo Harpa Ágústsdóttir sem m.a. var kærð á sínum tíma fyrir aðkomu sína að manndrápsmáli í Hafnarfirði fyrir um 20 árum, þar sem hún vann sem starfsmaður barnaverndarnefndar. Harpa hefur verið kærð fyrir framgöngu sína í fleirum tálmanaofbeldismálum. Í kjölfar málsins í Hafnarfirði hrökklaðist Harpa norður til Akureyrar, þar sem hún fær að halda starfi sínu þrátt fyrir ófagleg vinnubrögð sem haft hafa skelfilegar afleiðingar fyrir mörg börn.

Aðgerðarleysiði í máli Áskels Arnar, Hörpu og kennarans í Giljaskóla vekur upp spurningar vegna framkomunnar við Snorra í Betel en benda má á að formaður barnaverndarnefndar Eyjafjarðar og yfirmaður Áskels Arnar er Baldur Dýrfjörð eiginmaður annars skólastjórans í Brekkuskóla.

Mikill tvískinnungur virðist ríkjandi hjá þeim sem ráða för á Akureyri og augljóst að ekki er sama hver á í hlut eða á hverja er ráðist.

 
Next >
Copyright 2013 Félag ábyrgra foreldra - Akureyri.